Frétt
20.12.09
Nýtt jólafréttabréf
Í jólamánuðinum kom út nýtt fréttabréf Félagsbústaða hf. Af helsta efni ber að nefna grein um ástandið á húsnæðismarkaðnum, Vefþuluna á heimasíðunni, verðlaun Sjálfsbjargar og áframhaldandi eldvarnarátak félagsins í samvinnu við Vátryggingarfélag Íslands og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
Þar sem jólum og áramótum geta oft fylgt margvíslegar eldhættur var ákveðið að gera sérstakt leiðbeiningarblað um eldvarnir tengdar hátíðunum og fylgdi það með fréttabréfinu ásamt jólagjöf frá VÍS í formi rafhlöðu fyrir reykskynjara.
Upplagið er 2300 eintök og er dreift til allra leigjanda Félagsbústaða hf.
Hægt er að nálgast fréttabréfið og leiðbeiningarblaðið hér á heimasíðunni.