Umsókn um húsnæði

Hlusta á upplestur

Umsækjandi um leiguhúsnæði hjá Félagsbústöðum þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • að vera orðinn 18 ára á umsóknardegi.
  • að hafa átt lögheimili í Reykjavík a.m.k. síðustu 3 árin samfellt áður en umsókn berst.
  • að vera undir ákveðnum eigna- og tekjumörkum.

Eignamörk eru 3.897.000 kr.

Tekjumörk miðast við meðaltekjur síðustu 3ja ára.
Árstekjur einstaklinga: 2.794.865 kr.
Árstekjur hjóna/sambýlisfólks: 3.913.800 kr.
Árstekjur barna yngri en 20 ára: 467.874 kr.

Heimilt er að taka tillit til skuldastöðu / greiðslubyrði umsækjanda. Hægt er að sækja um undanþágu frá tekju- og eignamörkum.


Umsóknir skulu berast Velferðarsviði Reykjavíkurborgar en umsóknareyðublöð fást hjá félagsráðgjöfum á borgarhlutaskrifstofum Velferðarsviðsins. Upplýsingar um fylgigögn, undanþágur o.fl. er að finna hér á heimasíðu Velferðarsviðsins. 

Velferðarsviðið annast jafnframt úthlutun á íbúðum samkvæmt reglum um leigurétt og úthlutun á félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík.

Húsaleigubætur

Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótum sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Það eru skilyrði húsaleigubóta að húsaleigusamningur um viðkomandi húsnæði sé til sex mánaða eða lengri tíma og að honum hafi verið þinglýst (leigjendur Félagsbústaða eru undanþegnir þinglýsingu). Nánari upplýsingar um húsaleigubætur er að finna hjá Félagsmálaráðuneytinu




Aukaval


Leturstærð:


Leit

Leitarvél