Spurt og Svarað

Hlusta á upplestur

Starfsemi

  • Hvar eru Félagsbústaðir til húsa?

    Skrifstofa Félagsbústaða er að Hallveigarstíg 1, 3. og 4. hæð. Móttaka er á 3.hæð hússins ásamt fjármála- og þjónustudeild, en framkvæmdadeild er á 4.hæð. Auk þess er lageraðstaða, verkstæði og geymsla við Hlemm.
  • Hver er opnunartími skrifstofu Félagsbústaða?

    Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga frá 8:00-16:00.
  • Hvenær eru símatímar hjá Félagsbústöðum?

    Símatími innheimtustjóra er frá kl. 11:00- 12:00 í síma 520-1500 alla virka daga.
    Símatími þjónustudeildar er frá kl. 9 -10:00 í síma 520-1500 alla virka daga.
    Símatími viðhaldsþjónustu er frá kl. 13:00-15:00 í síma 557-9664 alla virka daga.
  • Hver er saga Félagsbústaða?

    Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í desember 1996 að stofna hlutafélag um eignarhald og rekstur félagslegs leiguhúsnæðis á vegum Reykjavíkurborgar. Félagsbústaðir hf. voru stofnaðir 8. apríl 1997 og var byggt á norrænni reynslu af sambærilegum rekstri. Nánar um sögu Félagsbústaða.
  • Hver er tilgangur og markmið Félagsbústaða?

    Megintilgangur Félagsbústaða er að eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík. Helsta markmið fyrirtækisins er að reka þjónustufyrirtæki á húsnæðismarkaði á sjálfbæran hátt í þágu almannaheilla. Nánar um tilgang og markmið Félagsbústaða.
  • Hver á Félagsbústaði?

    Félagsbústaðir eru hlutafélag sem er alfarið í eigu Reykjavíkurborgar.
  • Hversu margar íbúðir eru í eigu Félagsbústaða?

    Í árslok 2009 áttu Félagsbústaðir hf. 2.158 íbúðir, samtals um 160 þús. . Meðalstærð íbúða var 74 . Fyrirtækið er stærsti aðilinn í rekstri íbúðarhúsnæðis á Íslandi. Nánar um fasteignir Félagsbústaða.
  • Hverjir er yfirmenn Félagsbústaða?

    Framkvæmdastjóri er Sigurður Kr. Friðriksson. Forstöðumenn deilda eru: Þórarinn Magnússon framkvæmdadeild og Birgir Ottósson þjónustudeild. Nánar um skipurit Félagsbústaða.
  • Hver skipar í stjórn Félagsbústaða og hverjir sitja í henni?

    Borgarráð skipar í stjórn Félagsbústaða. Þrír menn sitja í stjórn fyrirtækisins ásamt framkvæmdastjóra og er núverandi formaður Benedikt Bogason. Nánar um stjórn Félagsbústaða og skýrslu stjórnar.
  • Hver er fjöldi starfsmanna Félagsbústaða og hvernig er hægt að hafa samband við þá?

    Hjá fyrirtækinu starfa í dag 24 starfsmenn, þar af 7 í fjármáladeild, 3 í þjónustudeild og 13 í framkvæmdadeild auk framkvæmdastjóra. Hægt er að hafa samband við starfsmenn með tölvupósti eða gegnum skiptiborð í síma 520-1500. Nánar um starfsmannastefnu Félagsbústaða.
  • Í hvaða deildir skiptist starfsemi Félagsbústaða?

    Starfsemi fyrirtækisins fer fram í þremur starfsdeildum: fjármála-, framkvæmda- og þjónustudeild.

Efst á síðu

Fjármáladeild

  • Hvert á að leita varðandi greiðslu á húsaleigu eða vandamál því tengdu?

    Fjármáladeild annast þá hlið mála og er símatími innheimtustjóra frá kl. 11:00- 12:00 í síma 520-1500 alla virka daga.
  •  Hverjar eru tekjur Félagsbústaða?

    Leigutekjur Félagsbústaða hf. á árinu 2007 námu 1.721 m.kr og var það aukning um 9% frá árinu áður. Nánar um ársuppgjör Félagsbústaða.
  • Hvernig er upphæð húsaleigu útreiknuð?

    Leiga er reiknuð út frá fasteignamati íbúðar.
  • Hvað gerist ef húsaleiga er ekki greidd?

    Gjalddagi húsaleigu er 1. hvers mánaðar og eindagi 10 dögum síðar. Ef húsaleiga er ekki greidd fyrir 28. hvers mánaðar fer krafan í innheimtu hjá Intrum. Þegar vanskil húsaleigu eru orðin 3 mánuðir er krafan send til Lögheimtunnar þar sem útburðarferli hefst.

Efst á síðu

Framkvæmdadeild

  • Hvert á að leita vegna bilana og viðgerða á íbúð?

    Tilkynna skal um bilanir og þörf á viðgerðum á símatíma viðhaldsþjónustu, alla virka daga milli kl.13:00-15:00 í síma 557-9664.
  • Hvaða viðhaldsþætti eiga leigjendur að annast sjálfir?

    Leigjendur eiga að annast minniháttar viðhaldsþætti sem orsakast sökum slits eða notkunar íbúa. T.d. ljós og perur, sturtubarka, úðara, sigti í krana og lykla að íbúð, póstkassa eða geymslu.
  • Hver annast viðhald á lóðum og sameign?

    Félagsbústaðir annast sjálfir allt viðhald á lóðum og í sameign í þeim fjölbýlishúsum sem fyrirtækið á að fullu. Viðkomandi húsfélag annast viðhald á lóðum og sameign þar sem Félagsbústaðir eru í minnihluta.
  • Hvert eiga leigjendur að leita í neyðartilvikum eða vegna viðgerða sem nauðsynlegt er að bregðast við utan opnunartíma Félagsbústaða?

    Lögregla, slökkvilið og neyðarþjónustur veita íbúum borgarinnar upplýsingar um hvert hægt er að leita eftir aðstoð.
  • Hversu langt líður á milli þess að íbúð er máluð?

    Íbúðir eru að jafnaði málaðar eftir 6-8 ár frá því að leigjendur flytja inn nema að aðrar ástæðir komi til, s.s. skemmdir, staðbundnar aðstæður osfrv. Matsmenn Félagsbústaða ákveða hvort og hvenær þurfi að mála íbúð.
  • Mega leigjendur gera breytingar á íbúð Félagsbústaða?

    Samkvæmt húsaleigusamningi mega leigjendur ekki gera neinar breytingar á íbúð Félagsbústaða nema með leyfi fyrirtækisins.
  • Hvert skal leita vegna framkvæmda á vegum húsfélags þar sem Félagsbústaðir eru í minnihluta?

    Félagsbústaðir veita þögult samþykki í stjórn húsfélags fyrir endurbótum á sameign. Ef húsfélag stendur fyrir endurbótum og framkvæmdum við hverja íbúð fyrir sig skal tilkynna Félagsbústöðum um verklýsingu og kostnað áður en þær hefjast. Leita skal til framkvæmdardeildar eða hringja í viðhaldsþjónustu frá kl. 13:00-15:00 í síma 557-9664 alla virka daga.

Efst á síðu

Þjónustudeild

  • Hver annast gerð húsaleigusamnings?

    Þjónustudeild Félagsbústaða annast gerð húsaleigusamninga og sinnir leigusalahlutverki félagsins. Símatími þjónustudeildar er frá kl. 9:00-10:00 í síma 520-1500 alla virka daga.
  • Hvert á að leita vegna slæmrar umgengni annara íbúa eða brota á húsreglum?

    Leita skal til þjónustudeildar á auglýstum símatíma varðandi framfylgni húsreglna og húsaleigulaga ásamt samskiptum við meðeigendur Félagsbústaða ef upp koma húsreglnabrot. Nánar um verkefni þjónustudeildar.
  • Hverjar eru húsreglur í fjöleignarhúsum Félagsbústaða?

    Nánar um húsreglur.
  • Hverjar eru afleiðingar þess ef leigjendur brjóta húsreglur?

    Brot á húsreglum geta valdið riftun á húsaleigusamningi.
  • Hvað gera leigjendur til að segja upp íbúð hjá Félagsbústöðum?

    Tilkynna skal um uppsagnir á íbúð til þjónustudeildar. Við leigulok hittast fulltrúi Félagsbústaða og leigjandi í íbúðinni þar sem lyklum er skilað.
  • Hvert skal leita varðandi muni og rusl sem er í leyfisleysi í sameign (t.d. í hjólageymslu og á göngum)?

    Leita skal til þjónustudeildar á auglýstum símatíma. Munir og hverskonar drasl frá leigjendum í sameign verður fjarlægt af Félagsbústöðum og á kostnað viðkomandi leigjanda eða húsfélags.
  • Hvað er gert við þá muni sem fjarlægðir eru úr sameign?

    Félagsbústaðir hafa fullan rétt til að henda öllum þeim munum sem eru í sameign í trássi við húsreglur. Þó eru einstaka munir geymdir til skamms tíma ef ástæða þykir.

Efst á síðu

Annað

  • Hver annast úthlutun á íbúðum Félagsbústaða?

    Velferðasvið Reykjavíkur hefur ákvörðunarrétt um úthlutun á íbúðum, en Félagsbústaðir annast formlega afhendingu á lyklum, skráningu o.fl.
  • Hvar er sótt um íbúð hjá Félagsbústöðum?

    Umsóknir skulu berast Velferðarsviði Reykjavíkur og umsækjandi um leiguhúsnæði hjá Félagsbústöðum þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Nánar um umsókn um húsnæði.
  • Hvar er hægt að fá fréttir af rekstri og starfsemi Félagsbústaða?

    Fréttir af rekstri og starfsemi Félagsbústaða er að finna hér á heimasíðu félagsins. Einnig fá leigjendur heimsent fréttabréf 2-3 sinnum ári. Nánar um fréttir og fréttabréf.
  • Eiga leigjendur hjá Félagsbústöðum rétt á húsaleigubótum og hvert skal leita varðandi þær?

    Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótum sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Nánar um húsaleigubætur.
  • Hver ber ábyrgð og kostnað á skemmdum á íbúð Félagsbústaða?

    Ef leigjandi eða aðili honum tengdur hefur valdið skemmdunum þá ber hann ábyrgð og gæti þurft að greiða kostnaðinn af viðgerð. Skemmdir af völdum utanaðkomandi þátta, s.s. veðri, náttúruhamförum og aðilum ótengdum leigjanda eru á ábyrgð og kostnað Félagsbústaða.
  • Veita Félagsbústaðir leigjendum sínum aðstoð með flutninga, uppsetningu, losun úrgangs eða aðra aðstoð?

    Nei. Ef leigjendur telja sig hafa brýna þörf eða rétt á aðstoð af fjárhagslegum ástæðum eða öðrum þá er þeim bent á að leita til Velferðarsviðs Reykjavíkur.
  • Hver er stefna Félagsbústaða varðandi umhverfismál?

    Undanfarin ár hefur verið unnið að mótun umhverfisstefnu fyrir Félagsbústaði. Stefán Gíslason sem er sérfróður á sviði umhverfisstjórnunar hefur verið ráðgjafi Félagsbústaða við þetta verk. Í vinnuferlinu hefur verið fundað með starfsmönnum og haldnir fræðslufundir fyrir starfsmenn og ýmsa verktaka sem vinna fyrir Félagsbústaði. Umhverfisstefnan liggur nú fyrir í endanlegri mynd og er birt í heild sinni hér

Efst á síðu




Aukaval


Leturstærð:


Leit

Leitarvél