Allar fréttir

Hlusta á upplestur

23.12.11

Jólafréttabréfið komið út

Nú í desember kom út fréttabréf Félagsbústaða hf. Af helsta efni ber að nefna fréttir um umhverfismál hjá félaginu, góðan árangur í eldvörnum ásamt jólakveðju til leigjenda.
23.03.11

Fréttatilkynning til Kauphallar Íslands hf.

Fréttatilkynning til Kauphallar Íslands hf. vegna ársuppgjörs Félagsbústaða hf. fyrir árið 2010
17.12.10

Jólafréttabréfið komið út

Að venju kennir margra grasa í fréttabréfinu og má þar helst nefna umfjöllun um aðgengismál í framkvæmd, búsetukjarna fyrir geðfatlaða og samstarf um eldvarnir við VÍS.
20.12.09

Nýtt jólafréttabréf

Í jólamánuðinum kom út nýtt fréttabréf Félagsbústaða hf. Af helsta efni ber að nefna grein um húsnæðismarkaðinn og eldvarnarátak félagsins í samvinnu við VÍS og SHS.
17.06.09

Vefþulan á heimasíðunni

Félagsbústaðir hf. hafa tekið tölvuforritið Vefþulan í notkun hér á heimasíðu sinni.
07.04.09

Nýtt fréttabréf

Í byrjun apríl kom út fyrsta fréttabréf ársins en að þessu sinni er það tileinkað eldvarnarátaki.
23.12.08

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Félagsbústaðir óska öllum sínum leigjendum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir samstarfið á líðandi ári.
29.10.08

Nýtt fréttabréf

Í lok október kom út nýtt fréttabréf og kennir þar ýmissa grasa sem endranær.
30.05.08

Tilkynning til leigjenda um breytt form á niðurgreiðslu Reykjavíkurborgar

Ákveðið var í borgarráði 25. apríl s.l. að almennum niðurgreiðslum Reykjavíkurborgar vegna leiguíbúða Félagsbústaða verði breytt í persónubundinn stuðning við leigjendur í formi almennra húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta.
07.04.08

Húsaleigubætur hækka

Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, undirritaði í dag reglugerð sem kveður á um hækkun húsaleigubóta frá og með 1. apríl 2008. Húsaleigubætur hafa ekki hækkað frá árinu 2000.
02.04.08

Nýjar húsreglur

Nýjar húsreglur fyrir fjöleignarhús Félagsbústaða hf. tóku gildi í gær og koma þær í stað fyrri húsreglna frá árinu 2003.
03.09.07

Nýtt fréttabréf

Nýtt fréttabréf kom út í síðustu viku og er það tileinkað 10 ára afmæli Félagsbústaða.
20.04.07

Ný heimasíða Félagsbústaða

Nú hefur verið tekin í notkun ný heimasíða Félagsbústaða í tilefni af 10 ára afmæli félagsins á þessu ári.
22.12.06

Staða aðgengismála á Norðurlöndum

Í sumar kom út ritið “Staða aðgengismála á Norðurlöndum” á vegum Félagsbústaða og er höfundur þess Þórarinn Magnússon verkfræðingur og deildarstjóri framkvæmdadeildar félagsins.
22.12.06

Grænt bókhald

Út er komin umhverfisskýrsla Félagsbústaða fyrir árið 2005 – grænt bókhald.
22.12.06

Jólin nálgast

Aðventa er nú gengin í garð og senn líður að jólum og áramótum. Á þessum hátíðlega tíma ársins vilja Félagsbústaðir koma fáeinum ábendingum á framfæri til leigjenda sinna.
22.12.06

Lykilatriði

Að gefnu tilefni er leigjendum vinsamlega bent á að sýna fyrirhyggju varðandi lykla að íbúðum sínum. Við afhendingu íbúðar fá leigjendur öll eintök lykla að íbúðarhurðum og því geyma Félagsbústaðir engin varaeintök af þeim.
22.12.06

Fjölgun íbúða

Áður hefur verið sagt frá kaupum Félagsbústaða hf. á samtals 124 þjónustuíbúðum fyrir aldraða að Dalbraut og Norðurbrún af Reykjavíkurborg.
22.12.06

Vetrarverk

Þegar vetur gengur í garð þá er að ýmsu að huga varðandi rekstur fasteigna. Niðurfall á svölum, bíla-stæðum og víðar geta stíflast í snjó og krapi og það getur valdið óþægindum og tjóni ef ekki er brugðist skjótt við.
14.07.06

Að ná sáttum við umhverfi sitt

Á lífsleiðinni lendar flestir í einhvers konar ágreiningi, en hann er óhjákvæmilegur þáttur eðlilegra samskipta. Hægt er að bregðast við ágreiningi á mismunandi hátt – hann getur orðið að illleysanlegu vandamáli sem hefur slæm áhrif á okkur og umhverfi okkar, en við getum líka nýtt orkuna á jákvæðan hátt til þess að finna viðunandi lausn á málinu, þroska okkur og breyta viðhorfum okkar.
14.07.06

Of seint að vera vitur eftir á

Í ljósi bruna sem átt hafa sér stað í húsnæði Félags-bústaða á undanförnum árum viljum við enn og aftur hvetja leigjendur til þess að fara varlega með eld, yfirfara rafmagnstæki með tilliti til brunahættu og gæta þess að nauðsynlegar brunavarnir séu til staðar á heimilinu. Félagsbústaðir hafa kappkostað og lagt á það áherslu við afhendingu íbúða að reykskynjarar og eldvarnarteppi séu til staðar í íbúðunum og slökkvitæki í sameignum.
14.07.06

Framkvæmdaáætlun 2006

Í framkvæmdaáætlun þessa árs eru fastir kostnaðarliðir umfangsmiklir að venju. Vegur þar þyngst kostnaður við íbúðaskipti, framkvæmdagjöld húsfélaga og ýmislegt ófyrirséð viðhald.
14.07.06

Sameignir og bílastæði

Að gefnu tilefni vilja Félagsbústaðir árétta það við leigjendur sína að bannað er að skilja eftir í sameign fjölbýlishúsa hvers konar húsgögn, tæki, dót eða drasl. Í samræmi við húsreglur þá áskilja Félagsbústaðir sér allan rétt til að fjarlægja það fyrirvaralaust sem skilið er eftir í óleyfi í sameign á kostnað viðkomandi húsfélags.
14.07.06

Tvö fjölbýlishús keypt

Gengið hefur verið frá kaupum FB á tveimur fjölbýlishúsum í eigu Reykjavíkurborgar.
13.12.05

Íbúðaráð í leiguíbúðum Félagsbústaða

Í starfsáætlun Félagsþjónustunnar fyrir árið 2004 var lagt til að samstarf við Félagsbústaði og aðra hagsmunaaðila um málefni leigjenda yrði aukið og þróað. Eitt af þeim markmiðum sem samstarfsaðilar settu sér var að stofnuð yrðu íbúaráð í nokkrum fjölbýlishúsum í eigu Félagsbústaða.
13.12.05

Hólmvað afhent

Í byrjun október s.l. tóku Félagsbústaðir í notkun nýtt og glæsilegt fjölbýlishús að Hólmvaði 24-36 í Norðlingaholti.
13.12.05

Jólin nálgast

Aðventa er nú gengin í garð og senn líður að jólum og áramótum. Á þessum hátíðlega tíma ársins vilja Félagsbústaðir koma fáeinum ábendingum á framfæri til leigjenda sinna. Í kringum jól og nýár myndast oft mikið sorp tengt jólahreingerningum, auglýsingabæklingum gjafapappír o.s.frv. og eru leigjendur beðnir að gæta þess að stífla ekki sorprennur með of miklu magni eða “lögun” sorpsins.
13.12.05

Gvendargeisli keyptur

Félagsbústaðir festu nýlega kaup á fjölbýlishúsinu að Gvendargeisla 21 í Grafarholti.
13.12.05

Sala íbúða í Fannarfelli

Tekin hefur verið ákvörðun um að selja allar íbúðirnar tuttugu talsins í tveimur stigahúsum að Fannarfelli 2 og 4 í Efra Breiðholti og kaupa jafn margar í öðrum hverfum borgarinnar. Salan er liður í því að jafna fjölda félagslegs leiguhúsnæðis í hverfum borgarinnar.
05.08.05

Sala fyrirhuguð á 20 íbúðum í Fellahverfi

Félagsbústaðir hf. hafa í hyggju að fækka leiguíbúðum í Fannarfelli en þar á félagið 60 íbúðir. Íbúðirnar voru byggðar árið 1973 sem hluti af átaki Framkvæmdanefndar byggingaáætlunar í tengslum við kjarasamninga um fjölgun félagslegra íbúða.
01.06.05

Samningur um rekstur þjónustuíbúða

Í febrúar sl. var undirritaður samningur milli Félagsbústaða hf. og Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um verka- og kostnaðarskiptingu á rekstri þjónustuíbúða á Lindargötu, Lönguhlíð og Furugerði.
01.06.05

Jórufell 2-12

Nú er að ljúka fram-kvæmdum ársins að Jórufell 2-12. Verið er að ganga frá garðskýlum sem frestað var í byrjun þessa árs.
01.06.05

Endurgerð Bjarnaborgar

Framkvæmdir við endur-gerð Bjarnaborgar standa enn yfir. Mikið er búið að gera en margt er enn eftir.
01.06.05

Grænt bókhald

Á vormánuðum kom út ársskýrsla Félagsbústaða hf. fyrir grænt bókhald 2004. Er þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið gefur út sérstaka umhverfis- skýrslu en ætlunin er að slík útgáfa verði árleg hér eftir.
01.06.05

Hundahald

Undanfarið hefur borið á auknu hundahaldi meðal leigjenda Félagsbústaða.
01.06.05

Greiðsluseðlar

Að undanförnu hafa leigjendur Félagsbústaða sem eru í beingreiðslum eða greiðsluþjónustu ekki fengið sendan greiðsluseðil. Nú er orðin breyting þar á en frá 1. apríl eiga allir leigjendur að fá heimsenda greiðsluseðla. Þar með fá þeir upplýsingar um sundurliðun húsa-leigunnar, þ.e.a.s. hver upphæð leigu, hússjóðs og húsaleigubóta er í hverjum mánuði.
15.04.05

Skýrsla stjórnar, ársreikningur 2004 og grænt bókhald.

Þann 22.mars sl. var haldinn aðalfundur Félagsbústaða hf. og þar var lögð fram skýrsla stjórnar, ársreikningur ársins 2004 sem og ársskýrsla fyrir grænt bókhald fyrirtækisins.
04.02.05

Jórufell 2-12

Nú er nýlega lokið framkvæmdum við lokun svala, klæðningu og aðrar endurbætur utanhúss að Jórufelli 2-12.
04.02.05

Síðasta kaupleiguíbúðin í Reykjavík

Árið 1990 lagði þáverandi félagsmálaráðaherra fram tillögur á Alþingi um kaup og byggingar á kaupleiguíbúðum. Tillögurnar voru samþykktar og í Reykjavík voru byggðar 208 íbúðir.
04.02.05

Tvö ný fjölbýlishús

Á þessu ári hefjast framkvæmdir við smíði tveggja nýrra fjölbýlishúsa fyrir Félagsbústaði. Að Þorláksgeisla 9, Grafarholti, verða byggðar 20 íbúðir tveggja, þriggja og fjögurra herbergja.
04.02.05

Grænt bókhald

Í samræmi við umhverfisstefnu sína hafa Félagsbústaðir ákveðið að færa svokallað “grænt bókhald” yfir starfsemina.
04.02.05

Framkvæmdaáætlun 2005

Áætlun um viðhaldsframkvæmdir þessa árs liggur nú fyrir.
04.02.05

Nýtt fréttabréf komið út

Í vikunni kom út fyrsta fréttabréf ársins og kennir þar ýmissa grasa sem endranær. Meðal efnis eru verklok að Jórufelli 2-12, framkvæmdaáætlun ársins 2005, umfjöllun um síðustu kaupleiguíbúðina, bygging tveggja nýbygginga o.fl.
04.02.05

Að gefnu tilefni - Sigurður Kr. Friðriksson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf.

Í umræðuþáttum á Útvarpi Sögu undanfarna daga hafa komið fram fullyrðingar um fyrirhugaða hækkun á leigu íbúða í eigu Félagsbústaða hf.
24.12.04

Jóla- og nýárskveðjur

Starfsfólk Félagsbústaða hf. sendir öllum leigjendum og samstarfsaðilum bestu jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu 2004.
27.10.04

Bjarnaborgin endurbætt

Utanhúsviðgerðir á Bjarnaborg hafa staðið yfir í allt sumar og verður þeim haldið áfram eins og aðstæður leyfa nú í vetur.
27.10.04

Heimsókn frá Danmörku

Í byrjun október fengu Félagsbústaðir góða gesti í heimsókn frá Danmörku. Var þar um að ræða 31 starfsmenn og aðra fulltrúa frá húsnæðisfélaginu KAB / Herlev Boligselskab í Kaupmannahöfn.
27.10.04

Öldin okkar

Nú styttist í að lokið verði vinnu við endurbætur og breytingar á Njálsgötu 65 sem áður gekk undir nafninu Hótel Öld.
27.10.04

Heimasíða endurbætt

Í sumar var unnið mikið verk í að breyta og bæta heimasíðu Félagsbústaða.
27.10.04

Framkvæmdir að Jórufelli

Í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir við gagngerar endurbætur á húsinu að Jórufelli 2-12. Búið er að mála húsið að utan að verulegu leiti.
27.10.04

Metár í standsetningum

Það sem af er þessu ári hefur verið óvanalega mikið að gera í standsetningu íbúða og á það jafnt við um íbúaskipti, standsetningu nýrra íbúða sem keyptar hafa verið og íbúðir í búsetu.
19.09.04

Framkvæmdir 2004

Á undanförnum árum hafa Félagsbústaðir ráðist í a.m.k. eina stóra viðhaldsframkvæmd á ári.
26.02.04

Tvö fjölbýlishús keypt

Nýlega var gengið frá kaupum Félagsbústaða á tveimur fjölbýlishúsum í eigu Reykjarvíkurborgar, Furugerði 1 og Lönguhlíð 3.
26.02.04

Bjarnarborgin keypt

Í desember s.l. var gengið frá kaupum Félagsbústaða á hinu fornfræga húsi Bjarnarborg að Hverfisgötu 83.
26.02.04

Verklok að Skúlagötu 64-80

Í nóvember sl. lauk umfangsmiklum viðhaldsframkvæmdum að Skúlagötu 64-80. Fólust þær m.a. í viðgerðum á steypuskemmdum og endursteinun, þakviðgerðum, nýjum svalahurðum og gluggum, viðgerð og málun á tréverki svo eitthvað sé nefnt.
26.02.04

Hjólageymslur

Nú í ár verður gert átak til að bæta umgengni um hjóla- og vagnageymslur í sameign. Starfsmenn Félagsbústaða munu koma á auglýstum tíma og fjarlægja öll ómerkt hjól og verða geymslurnar þrifnar og málaðar.
26.02.04

Framkvæmdaáætlun 2004

Af einstökum verkefnum verða langmestu framkvæmdirnar að Jórufelli 2-12. Þar hefur verið ákveðið að loka svölum, gera við múrskemmdir og mála húsið.
26.02.04

Nýtt fréttabréf komið út

Í vikunni kom út fyrsta fréttabréf ársins og kennir þar ýmissa grasa sem endranær.
19.09.03

Spurt & Svarað

Hér á heimasíðunni hefur verið bætt við nýrri síðu sem nefnist Spurt & Svarað.
26.08.03

Öryggismál hjá Félagsbústöðum

Til að hamla gegn spjöllum á sameign og til að auka öryggi íbúa hússins hefur verið tekin upp rafræn vöktun með sjálfvirkri myndbandsupptökuvél á nokkrum stöðum í húseignum Félagsbústaða.
26.08.03

Brunavarnir að Meistaravöllum 19-29

Fyrr í sumar lauk framkvæmdum við úrbætur á brunavörnum í stigahúsum að Meistarvöllum 19-29.
21.08.03

Framkvæmdum lýkur við Hringbraut 121

Nú er að ljúka smíði 12 íbúða í bakhúsinu að Hringbraut 121 (bak við Nóatúnsbúðina) og er gert ráð fyrir að fyrstu íbúarnir flytji inn í byrjun september.
20.08.03

Skúlagata 64-80

Viðhaldsframkvæmdir að Skúlagötu 64-80 ganga samkvæmt áætlun.
18.07.03

Þórðarsveigur 1-5

Félagsbústaðir eru að taka í notkun 50 íbúða fjölbýlishús við Þórðarsveig 1-5 á mörkum Vestur- og Austursvæðis í Grafarholti.
12.06.03

Fréttabréf

Í þessari viku kemur að nýju út Fréttabréf Félagsbústaða eftir nokkurt hlé og mun það koma út um 3-4 sinnum á ári héðan í frá.
22.05.03

Félagsbústaðir flytja að Hallveigarstíg 1

Á næstu dögum mun starfsemi Félagsbústaða flytja frá Suðurlandsbraut 30 að Hallveigarstíg 1, 3. og 4.hæð.
21.05.03

Skúlagata 64-80

Um þessar mundir standa yfir umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir að Skúlagötu 64-80. Gert verður við allar steypuskemmdir og húsið endursteinað.
21.05.03

Hringbraut 121

Í júlí nk. verður lokið við smíði 12 íbúða fyrir eldri borgara í bakhúsinu að Hringbraut 121 (bak við Nóatúnsbúðina).
21.05.03

Bilanatilkynningar

Símanúmer bilanatilkynninga, 557-9664, helst óbreytt eftir flutning Félagsbústaða frá Suðurlandsbraut 30 að Hallveigarstíg 1.
20.05.03

Umhverfismál

Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að mótun umhverfisstefnu fyrir Félagsbústaði. Stefán Gíslason sem er sérfróður á sviði umhverfisstjórnunar hefur verið ráðgjafi Félagsbústaða við þetta verk.



Aukaval


Leturstærð:


Leit

Leitarvél