Chat with us, powered by LiveChat

FÉLAGSBÚSTAÐIR ÁFORMA YFIR 140 NÝJAR ÍBÚÐIR Á ÁRINU

Fréttir

Neðangreind grein birtist á Vísi 17.apríl 2020.

Á síðasta ári festu Félagsbústaðir kaup á 112 íbúðum til útleigu og eru nú ríflega 2800 íbúðir í eigu eða umsjón félagsins sem eru leigðar fólki sem býr við þrengstan efnahag í Reykjavík. Um 72% íbúðanna er almennt félagslegt leiguhúsnæði, 11% eru íbúðir fyrir fatlaða, 13% eru íbúðir fyrir aldraða og ríflega 1% íbúðanna er ætlaðar heimilislausum. Þess má geta að fjöldi íbúða Félagsbústaða er nú mun meiri en t.d. allar íbúðir á Seltjarnarnesi sem voru 1.703 í lok árs 2017.

Á þessu ári er ráðgert að kaupa 132 íbúðir til viðbótar og byggja tvo íbúðakjarna fyrir fatlaða með 6 íbúðum í hvorum kjarna. Áætlað er að kostnaður nemi alls um 4,5 milljörðum króna og hefur verið sótt um stofnframlög frá ríki og borg fyrir hluta kostnaðarins. Lög um almennar íbúðir frá 2016 sem miða að því að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga undir tilteknum tekju- og eignamörkum kveða á um heimildir ríkis og sveitarfélaga til að veita stofnframlög til byggingar og kaupa leiguíbúða. Þessi lög hafa haft mikil og jákvæð áhrif fyrir leigjendur og óhagnaðardrifin leigufélög en fyrir tilstilli þeirra hefur tekist að auka verulega framboð af leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði.

AUKINN JÖFNUÐUR – BETRA SAMFÉLAG

Félagsbústaðir sem eru alfarið í eigu Reykjavíkurborgar sinna því mikilvæga verkefni sveitarfélagsins að sjá til þess að framboð sé á leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði til að mæta grundvallar-mannréttindum og þörfum fólks fyrir eigið heimili og stuðla að auknum jöfnuði og betra samfélagi.

Á undanförnum misserum hefur markvisst verið unnið að því að styrkja og efla samfélagslegt hlutverk Félagsbústaða. Gerðar hafa verið þjónustukannanir meðal leigjenda og nú er verið að innleiða nýja þjónustustefnu með breyttum áherslum og stjórnskipulagi. Unnið hefur verið markvisst úr gagnlegum ábendingum innri- og ytri endurskoðenda og verið er að bæta og efla upplýsingatæknimál um leið og lögð er áhersla á að tryggja fjármagn svo unnt sé að mæta þörf fyrir fjölgun íbúða samkvæmt uppbyggingarstefnu borgarinnar.

Nýlega fengu Félagsbústaðir, fyrst íslenskra fyrirtækja, vottun og heimild til útgáfu félagslegra skuldabréfa (e.social bonds) en í því felst að útgáfa bréfanna er talin hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Við útgáfu skuldabréfanna hafa óhagstæð lán verið greidd upp og kaup nýrra íbúða fjármögnuð. Einn helsti hvatinn að útgáfu félagslegra skuldabréfa er vaxandi krafa fjárfesta um samfélagslega ábyrga fjárfestingakosti.

JÖFN DREIFING UM ALLA BORG

Stefna borgaryfirvalda er að 5% íbúðarhúsnæðis í borginni skuli vera félagslegt leiguhúsnæði sem dreifist sem jafnast í hverfi borgarinnar. Við kaup og byggingu íbúða er leitast við að jafna dreifinguna sem er nú á bilinu 1,5% til 7,5% eftir hverfum. Samkvæmt upplýsingum úr Borgarsjá var fjöldi íbúða í borginni í byrjun þessa árs 54,758 og þar af er liðlega 5% íbúðanna í eigu eða umsjón Félagsbústaða.

Á árinu 2019 var úthlutað 351 íbúð, ýmist til nýrra leigjenda eða vegna flutninga í aðrar félagslegar leiguíbúðir.

Tegund húsnæðisNýjar úthlutanirMilliflutningarSamtals
Almennt félagslegt leiguhúsnæði16050210
Þjónustuíbúðir aldraðra641074
Húsnæði fyrir fatlað fólk36743
Húsnæði fyrir heimilislausa11213
Áfangaheimili10111
Samtals28170351

Umsóknum um almennt félagslegt leiguhúsnæði fækkaði milli ára um 257 eða frá því að vera 906 í mars í fyrra í 649 í mars á þessu ári. Eins og sjá má af þessum tölum er enn mikil þörf fyrir að bæta við leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Talsvert hefur verið rætt og ritað um reikningsskilaaðferðir Félagsbústaða vegna fasteigna í eigu félagsins. Eignirnar hafa allt frá árinu 2004 verið færðar á svokölluðu gangvirðismati sem er í samræmi við heimildir í lögum um ársreikninga. Vegna gagnrýni á þessa aðferð var hún borin undir óháðan aðila, KPMG, sem komst að þeirri niðurstöðu að aðferðin væri í fullu samræmi við viðurkenndar reikningsskilaaðferðir og mjög algengt væri að leigufélög notuðu hana. KPMG telur viðeigandi að skilgreina leiguíbúðir í eigu Félagsbústaða sem fjárfestingareignir og fylgja ákvæðum IAS 40 um reikningshaldslega meðferð þeirra og færa eignirnar á gangvirði eins og nú er gert.

Askur
Veglegur styrkur úr Aski mannvirkjasjóði
Opnun á íbúðaskjarna að Vesturgötu 67
Nýr og glæsilegur íbúðakjarni við Vesturgötu
mynd mneð frétt
Breytingar til jöfnunar leiguverðs íbúða Félagsbústaða
Skoflustunga-Brekknaas-1
Hannað með tilliti til þarfa væntanlegra íbúa hússins
image-1
Samningur um nýbyggingu við Brekknaás
merki-fjorflokkarnir
Breytingar á sorphirðu og flokkun
23051902_skoflust_016.t64676b73.m800
Stefnt að 30% minna kolefnisspori við byggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk
Picture1
Utanhússframkvæmdir að Barónsstíg 30 og Bergþórugötu 41-45, sumarið 2023

Að hverju ertu að leita?