Chat with us, powered by LiveChat

JAFNVÆGI Í REKSTRI FÉLAGSBÚSTAÐA 2020

Fréttir

Rekstur Félagsbústaða (FB),  sem hafa þann tilgang að tryggja framboð af félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík,  gekk vel á síðasta ári. Félagið leigir út hátt í 3000 íbúðir og á árinu 2020 var fjárfest í 127 nýjum íbúðum. Íbúðir félagsins eru í öllum hverfum borgarinnar og ætlaðar fjölskyldum og einstaklingum undir tilteknum eigna- og tekjumörkum, auk leiguíbúða fyrir aldraða og fólk með fötlun. Nærri lætur að félagslegar leiguíbúðir séu um 5% af íbúðarhúsnæði í borginni og er leiguverð þeirra umtalsvert lægra en á almennum markaði.

Í ársreikningi FB fyrir árið 2020, sem samþykktur var af stjórn félagsins í síðustu viku, kemur fram að tekjur voru 4,7 ma.kr. og jukust um tæp 3,5% milli ára en rekstrargjöld námu 2,5 ma.kr. sem er liðlega 3,6% aukning frá fyrra ári. Rekstur  fasteigna og eignfærður kostnaður vegna þeirra nam rúmlega þremur  milljörðum króna  og fjárfesting í nýjum eignum nam rúmlega 3,8 ma.kr. 

Fjármagnsgjöld lækka um 18%

Í árslok 2020 voru skuldir félagsins 48,7 ma.kr. og höfðu aukist um 7,8% milli ára. Skuldbindingar vegna stofnframlaga ríkis og Reykjavíkurborgar námu 2,9 ma.kr. á árinu sem er aukning um 1,3 ma.kr. frá fyrra ári.  Í skýrslu stjórnar FB kemur meðal annars fram að fjármagnsgjöld Félagsbústaða lækkuðu um 0,2 ma.kr. á árinu 2020 miðað við fyrra ár og námu 1,1 ma.kr. Lækkun fjármagnsgjalda um 18% má rekja til endurfjármögnunar á eldri óhagstæðum lánum og til betri vaxtakjara hjá stærsta lánveitanda félagsins. Eignir Félagsbústaða voru samkvæmt efnahagsreikningi rúmlega 100 ma.kr. í árslok 2020, en þar af nema fjárfestingareignir 99 ma.kr. Eiginfjárhlutfall félagsins í árslok 2020 var 48,6%. Heildarhagnaður félagsins nam 1,4 ma.kr. og skýrist að mestu af hækkun fasteignamats á árinu.

Mikil fjölgun nýbyggðra eigna

Félagsbústaðir eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar sem sér um uppbyggingu, eignarhald og rekstur á félagslegu íbúðahúsnæði samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.  

Á árinu 2020 bættust sem fyrr segir 127 leigueiningar við eignasafn félagsins og eru það mestu íbúðakaup Félagsbústaða á einu ári í meira en áratug. Sigrún Árnadóttir framkvæmdastjóri félagsins segir sérstaklega ánægjulegt að viðbótin við eignasafnið á síðsta ári sé að stórum hluta nýbyggðar íbúðir. Aukning félagslegs leiguhúsnæðis tekur mið af áherslum í uppbyggingaráætlun borgarinnar um félagslegt leiguhúsnæði sem miðar að því að um 5% af íbúðahúsnæði í borginni sé félagslegt leiguhúsnæði og að það dreifist sem jafnast um hverfi borgarinnar.

Á árinu 2020 hófust framkvæmdir við byggingu tveggja sex íbúða húsa, við Árland 10 og Stjörnugróf 11 sem áformað er að ljúki á fyrri hluta 2021. Undirbúin var bygging þriggja minni fjölbýlishúsa við Vesturgötu 67, Rökkvatjörn 3 og Hagasel 23 og verður það síðastnefnda fyrsta Svansvottaða húsið sem Félagsbústaðir byggja.

Í skýrslu stjórnar Félagsbústaða kemur fram að kórónaveirufaraldurinn á árinu 2020 hafði óveruleg áhrif á rekstur félagsins og er ekki talinn ógna rekstri eða efnahag félagsins um fyrirsjáanlega framtíð. Samkvæmt eigandastefnu á rekstur félagsins að vera fjárhagslega sjálfbær.

Hér má nálgast ársreikning Félagsbústaða fyrir árið 2020. 

WeAreHiring
Okkur vantar hressan sérfræðing í leigjendamálum
Sambýlið við Hagasel 23
Fyrsta opinbera byggingin sem hlýtur Svaninn
Askur
Veglegur styrkur úr Aski mannvirkjasjóði
Opnun á íbúðaskjarna að Vesturgötu 67
Nýr og glæsilegur íbúðakjarni við Vesturgötu
mynd mneð frétt
Breytingar til jöfnunar leiguverðs íbúða Félagsbústaða
Skoflustunga-Brekknaas-1
Hannað með tilliti til þarfa væntanlegra íbúa hússins
image-1
Samningur um nýbyggingu við Brekknaás
merki-fjorflokkarnir
Breytingar á sorphirðu og flokkun

Að hverju ertu að leita?